Fréttir

Tónlistarnemum bættur upp kennslutími

12.12.2014

Á fundi bæjarráðs Seltjarnarnesbæjar þann 11. desember var samþykkt tillaga frá stjórnendum Tónlistarskóla Seltjarnarness um að bæta tónlistarnemum í skólanum upp þá kennslu sem þeir urðu af vegna verkfalls félagsmanna FT í október og nóvembermánuði sl. Þannig verður komið til við móts við þarfir nemenda skólans hvað nám og námsframvindu varðar og bættur sá skaði nemenda sem missir kennslu annars hefði í för með sér.

 

 Stjórnendur skólans munu ásamt kennurum sjá um skipulag þessarar kennslu, sem verður innt af hendi og að fullu lokið á vorönn 2015. Ekki kemur til endurgreiðslu skólagjalda vegna verkfallsins. 


Fréttir