Einkatímar í hljóðfæraleik
Frá og með þriðja bekk grunnskóla geta nemendur sótt um að komast í frekara hljóðfæranám við skólann. Hljóðfæranám fer fram í einkatímum og fær nemandi í fullu námi 60 mínútna kennslu á viku sem fyrstu námsárin er skipt í tvo 30 mínútna tíma.
Samkvæmt aðalnámskránni skiptist námið í þrjá megináfanga – grunnnám, miðnám og framhaldsnám – og lýkur hverjum áfanga með prófi, annars vegar í hljóðfæraleik og hins vegar í tónfræðigreinum. Nemendur sækja annan hljóðfæratíma vikunnar á kennslutíma grunnskóla.
Kennt er á velflest hljóðfæri í öllum hljóðfæraflokkum:
Hljómborðshljóðfæri: píanó, harmónikka
Strengjahljóðfæri: fiðla, víóla, selló, kontrabassi
Gítar: klassískur gítar, rafgítar, rafbassi
Tréblásturshljóðfæri: þverflauta, óbó, klarínett, fagott, saxófónn, blokkflauta
Málmblásturshljóðfæri: trompet, kornett, horn, básúna, barítón, túba
Slagverk: trommusett, mallethljóðfæri, önnur ásláttarhljóðfæri